FRÉTT MANNFJÖLDI 14. NÓVEMBER 2024

Vegna fyrirspurna frá notendum og fjölmiðlum vill Hagstofa Íslands árétta að breytt mat á mannfjölda fól í sér viðbrögð við auknum mun á skráðum íbúafjölda samkvæmt þjóðskrá og manntali Hagstofu Íslands. Við gerð manntals 2021 varð ljóst að fjöldi skráðra íbúa endurspeglaði ekki raunverulegan íbúafjölda og brást Hagstofan við í kjölfarið með bættum aðferðum.

Munurinn á þjóðskrá og mannfjöldatölum Hagstofunnar felst í því að tölur Hagstofunnar endurspegla fjölda þeirra sem eru raunverulega búsettir í landinu en tölur Þjóðskrár um skráða íbúa ná til þeirra sem skráðir eru með lögheimili í landinu óháð því hvort þeir séu raunverulega búsettir hér eða ekki.

Samtals bjuggu 388.790 manns á Íslandi í lok þriðja ársfjórðungs 2024, 199.340 karlar, 189.250 konur og kynsegin/annað voru 190.

Frekari upplýsingar um endurbætta aðferð við mat á íbúafjölda á Íslandi má finna í greinargerð Hagstofunnar.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.