FRÉTT MANNFJÖLDI 03. APRÍL 2012

Hinn 1. janúar síðastliðinn voru íbúar landsins 319.575. Þeim fjölgaði um 0,4% frá sama tíma árið áður eða um 1.123 einstaklinga. Árið 2011 fæddust 4.496 börn, 2.327 drengir og 2.169 stúlkur, en 1.985 manns létust. Fæddir umfram dána voru því 2.511. Í fyrra fluttust 6.982 utan en 5.578 til landsins. Brottfluttir umfram aðflutta voru því 1.404 árið 2011.

Drengir sem fæddust í fyrra geta vænst þess að ná 79,9 ára meðalaldri en stúlkur eiga hins vegar von á að ná að meðaltali 83,6 ára aldri.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagtíðindum um mannfjöldaþróun 2011 sem Hagstofan gefur út í dag.

Mannfjöldaþróun 2011 – Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.