FRÉTT MANNFJÖLDI 09. APRÍL 2013

Hinn 1. janúar síðastliðinn voru íbúar landsins 321.857. Þeim fjölgaði um 0,7% frá sama tíma árið áður eða um 2.282 einstaklinga. Árið 2012 fæddust 4.533 börn, 2.317 drengir og 2.216 stúlkur, en 1.952 létust. Fæddir umfram dána voru því 2.581. Í fyrra fluttust 6.276 utan en 5.957 til landsins. Brottfluttir umfram aðflutta voru því 319 árið 2012.

Drengir sem fæddust í fyrra geta vænst þess að ná 80,8 ára meðalaldri en stúlkur eiga hins vegar von á að ná að meðaltali 83,9 ára aldri.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagtíðindum um mannfjöldaþróun 2012 sem Hagstofan gefur út í dag.

Mannfjöldaþróun 2012 – Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.