FRÉTT MANNFJÖLDI 29. OKTÓBER 2015

Hinn 1. janúar 2015 voru 29.192 innflytjendur á Íslandi eða 8,9% mannfjöldans. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 8,4% landsmanna (27.445). Heldur fjölgun innflytjenda því áfram, en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans uppí 8,9%. Annarri kynslóð innflytjenda fjölgaði einnig á milli ára, voru 3.534 í fyrra en 3.846 nú. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 10,0% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega milli ára, voru 6,5% mannfjöldans í fyrra en 6,6% nú.
Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar hans og báðar ömmur. Önnur kynslóð innflytjenda eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent.


Pólverjar fjölmennastir innflytjenda
Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn voru 10.933 einstaklingar upprunnir frá Póllandi eða 37,5% allra innflytjenda. Þar á eftir koma innflytjendur frá Litháen (5,1%) og Filippseyjum (5,0%). Pólskir karlar eru 41,2% allra karlkyns innflytjenda eða 5.819 af 14.134. Litháenskir karlar eru næst fjölmennastir (5,1%) og síðan karlar með uppruna frá Bretlandi (3,6%). Pólskar konur eru 34,0% kvenkyns innflytjenda og næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (6,5%), þá konur frá Þýskalandi og Thailandi (5,1%).


Á Vestfjörðum og Suðurnesjum eru um 15% mannfjöldans innflytjendur
Hinn 1. janúar síðastliðinn bjuggu 21.857 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða 66,2% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var hæst á Vestfjörðum, en þar eru 15,4% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Suðurnesjunum þar sem 14,5% mannfjöldans eru innflytjendur eða börn þeirra. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra, en þar eru 5,1% mannfjöldans innflytjendur eða börn þeirra.



 

 

595 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang árið 2014
Í fyrra fengu 595 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt og er það sami fjöldi og árið áður þegar 597 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim 595 einstaklingum sem fengu íslenskt ríkisfang höfðu langflestir verið með ríkisfang frá Póllandi eða 149 og næst flestir með verið með ríkisfang frá Filippseyjum (52). Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt ríkisfang, en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meirihluta nýrra íslenskra ríkisborgara. Það átti einnig við í fyrra þegar 357  konur fengu íslenskan ríkisborgararétt en 238 karlar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.