Í lok 1. ársfjórðungs 2013 bjuggu 322.930 manns á Íslandi, 161.960 karlar og 160.970 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.040 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.910 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 206.650 manns.
Á 1. ársfjórðungi 2013 fæddust 1.040 börn, en 550 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 520 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 35 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 480 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 220 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 400 íslenskir ríkisborgarar af 580 alls. Af þeim 400 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 80 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (240), Noregi (140) og Svíþjóð (60), samtals 440 manns af 610. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 300 til landsins af alls 890 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 50 erlendir ríkisborgarar til landsins.
Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2013 | |||
Alls | Karlar | Konur | |
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs | 322.930 | 161.960 | 160.970 |
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs | 321.890 | 161.440 | 160.450 |
Breyting | 1.040 | 520 | 520 |
Fæddir | 1.040 | 510 | 530 |
Dánir | 550 | 280 | 270 |
Aðfluttir umfram brottflutta | 520 | 280 | 250 |
Aðfluttir | 1.500 | 810 | 690 |
Brottfluttir | 980 | 540 | 440 |
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar. |