Í lok 3. ársfjórðungs 2013 bjuggu 325.010 manns á Íslandi, 163.000 karlar og 162.010 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.200 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar búsettir á landinu voru 22.760. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 208.210 manns.
Á 3. ársfjórðungi 2013 fæddust 1.130 börn, en 530 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 620 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 170 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 790 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri konur en karlar fluttust frá landinu.
Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 420 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.080 íslenskir ríkisborgarar af 1.370 alls. Af þeim 540 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 100 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (380), Noregi (230) og Svíþjóð (230), samtals 830 manns af 1.200. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 400 til landsins af alls 1.330 erlendum innflytjendum. Þýskaland var næst í röðinni, en þaðan fluttust 110 erlendir ríkisborgarar til landsins.
Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2013 | |||
Alls | Karlar | Konur | |
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs | 325.010 | 163.000 | 162.010 |
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs | 323.810 | 162.400 | 161.410 |
Breyting | 1.200 | 600 | 610 |
Fæddir | 1.130 | 560 | 570 |
Dánir | 530 | 290 | 250 |
Aðfluttir umfram brottflutta | 620 | 330 | 290 |
Aðfluttir | 2.530 | 1.270 | 1.260 |
Brottfluttir | 1.910 | 940 | 970 |
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar. |
Talnaefni