Í lok 4. ársfjórðungs 2012 bjuggu 321.890 manns á Íslandi, 161.440 karlar og 160.450 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.230 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.470 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 205.740 manns.
Á 4. ársfjórðungi 2012 fæddust 1.110 börn, en 490 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 630 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 5 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 620 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 260 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 430 íslenskir ríkisborgarar af 650 alls. Af þeim 340 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 120 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (220), Noregi (170) og Svíþjóð (100), samtals 490 manns af 660. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 360 til landsins af alls 970 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 70 erlendir ríkisborgarar til landsins.
Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 4. ársfjórðungi 2012 | |||
Alls | Karlar | Konur | |
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs | 321.890 | 161.440 | 160.450 |
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs | 320.660 | 160.870 | 159.790 |
Breyting | 1.230 | 570 | 670 |
Fæddir | 1.110 | 560 | 550 |
Dánir | 490 | 240 | 240 |
Aðfluttir umfram brottflutta | 630 | 270 | 360 |
Aðfluttir | 1.630 | 840 | 790 |
Brottfluttir | 1.000 | 570 | 430 |
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar. |
Talnaefni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.