FRÉTT MANNFJÖLDI 17. JANÚAR 2013

Í lok 4. ársfjórðungs 2012 bjuggu 321.890 manns á Íslandi, 161.440 karlar og 160.450 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.230 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.470 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 205.740 manns.

Á 4. ársfjórðungi 2012 fæddust 1.110 börn, en 490 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 630 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 5 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 620 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 260 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 430 íslenskir ríkisborgarar af 650 alls. Af þeim 340 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 120 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (220), Noregi (170) og Svíþjóð (100), samtals 490 manns af 660. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 360 til landsins af alls 970 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 70 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 4. ársfjórðungi 2012  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 321.890 161.440 160.450
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 320.660 160.870 159.790
Breyting 1.230 570 670
Fæddir 1.110 560 550
Dánir 490 240 240
Aðfluttir umfram brottflutta 630 270 360
Aðfluttir 1.630 840 790
Brottfluttir 1.000 570 430
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.