FRÉTT MANNFJÖLDI 15. OKTÓBER 2012

Í lok 3. ársfjórðungs 2012 bjuggu 320.660 manns á Íslandi, 160.870 karlar og 159.790 konur. Landsmönnum fjölgaði um 500 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 20.820 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 204.630 manns.
 
Á 3. ársfjórðungi 2012 fæddust 1.230 börn, en 470 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 280 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 590 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 300 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri konur en karlar fluttust frá landinu.
 
Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 550 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.440 íslenskir ríkisborgarar af 1.790 alls. Af þeim 470 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 120 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (450), Noregi (270) og Svíþjóð (200), samtals 920 manns af 1.210. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 180 til landsins af alls 770 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 60 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2012  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 320.660 160.870 159.790
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 320.160 160.600 159.560
Breyting 500 270 230
Fæddir 1.230 600 630
Dánir 470 220 250
Aðfluttir umfram brottflutta -280 -120 -170
Aðfluttir 1.980 980 1.000
Brottfluttir 2.260 1.090 1.170
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni
 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.