Í lok 2. ársfjórðungs 2013 bjuggu 323.810 manns á Íslandi, 162.400 karlar og 161.410 konur. Landsmönnum fjölgaði um 880 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.990 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 207.120 manns.
Á 2. ársfjórðungi 2013 fæddust 1.100 börn, en 500 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 270 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 120 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 150 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 240 manns á 2. ársfjórðungi af 620 alls. Til Danmerkur og Svíþjóðar fluttust 170 íslenskir ríkisborgarar. Af þeim 690 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 160 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (220), Noregi (190) og Svíþjóð (130), samtals 540 manns af 740. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 300 til landsins af alls 840 erlendum innflytjendum. Spánn kom næst, en þaðan fluttust 45 erlendir ríkisborgarar til landsins.
Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 2. ársfjórðungi 2013 | |||
Alls | Karlar | Konur | |
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs | 323.810 | 162.400 | 161.410 |
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs | 322.930 | 161.960 | 160.970 |
Breyting | 880 | 440 | 440 |
Fæddir | 1.100 | 540 | 570 |
Dánir | 500 | 260 | 240 |
Aðfluttir umfram brottflutta | 270 | 170 | 110 |
Aðfluttir | 1.570 | 850 | 730 |
Brottfluttir | 1.300 | 680 | 620 |
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar. |
Talnaefni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.