FRÉTT MANNFJÖLDI 18. APRÍL 2012

Í lok 1. ársfjórðungs 2012 bjuggu 320.060 manns á Íslandi, 160.610 karlar og 159.450 konur. Landsmönnum fjölgaði um 500 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 20.950 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.970 manns.
 
Á 1. ársfjórðungi 2012 fæddust 1.060 börn, en 560 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 10 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 130 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 140 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.
 
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 270 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 540 íslenskir ríkisborgarar af 770 alls. Af þeim 450 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 150 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar voru frá Danmörku (270), Noregi (150) og Svíþjóð (60), samtals 490 manns af 640. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 180 til landsins af alls 600 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 35 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2012  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 320.060 160.610 159.450
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 319.560 160.360 159.200
Breyting 500 250 250
Fæddir 1.060 580 490
Dánir 560 280 280
Aðfluttir umfram brottflutta 10 -30 40
Aðfluttir 1.240 630 600
Brottfluttir 1.230 670 560
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.