FRÉTT MANNFJÖLDI 20. DESEMBER 2016

Aron var vinsælasta eiginnafn nýfæddra drengja á árinu 2015 en þar á eftir Alexander og Viktor. Emilía var vinsælasta stúlkunafnið en þar á eftir Sara og Ísabella. Þór var langvinsælasta annað eiginnafnið hjá drengjum, en þar á eftir Freyr og Hrafn. Rós var vinsælasta annað eiginnafnið hjá stúlkum.  Á eftir þeim kom stúlkunafnið Ósk og María sem vinsælasta annað eiginnafn nýfæddra stúlkna.

Þegar litið er á allan mannfjöldann í ársbyrjun 2016 voru 10 algengustu einnöfnin og fyrstu eiginnöfnin þau sömu og árið 2011. Hjá körlum var Jón algengasta nafnið, þá Sigurður og svo Guðmundur. Af kvenmannsnöfnum er Guðrún algengast, þá Anna og svo Kristín. Tíu algengustu karlmannsnöfnin hafa verið þau sömu frá 2011.

Flestir landsmenn bera fleiri en eitt nafn. Í ársbyrjun 2016 voru þrjár algengustu samsetningarnar hjá körlum Jón Þór, Gunnar Þór og Jón Ingi. Þetta voru einnig algengustu tvínefnin fimm árum fyrr. Hjá konum voru þrjár algengustu samsetningarnar Anna María,  Anna Margrét og Anna Kristín. Þetta voru líka þrjú algengustu tvínefnin árið 2011.

Afmælisdagar á Íslandi dreifast ekki jafnt yfir árið. Algengara er að börn fæðist að sumri og á hausti en yfir vetrarmánuðina, frá október og fram í mars. Alls eru 51,5% allra afmælisdaga á tímabilinu frá apríl til september. Í upphafi árs 2016 gátu flestir átt von á því að halda upp á afmælisdaginn 27. ágúst, alls 1.041 einstaklingar. Fæstir áttu afmæli á hlaupársdag, 29. febrúar, eða 211 manns. Næst kemur jóladagur (683) og aðfangadagur (716).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.