Ætla má að íbúar landsins verði 461 þúsund árið 2069 samkvæmt miðspá Hagstofunnar um þróun mannfjöldans. Til samanburðar var mannfjöldinn 364 þúsund hinn 1. janúar 2020. Í háspánni er reiknað með að íbúar verði 533 þúsund í lok spátímabilsins en 394 þúsund samkvæmt lágspánni.
Hagstofa Íslands hefur framreiknað mannfjöldann fyrir tímabilið 2020-2069 á grundvelli tölfræðilíkana fyrir búferlaflutninga, frjósemi og dánartíðni. Gerð eru þrjú afbrigði af framreikningnum; miðspá, háspá og lágspá. Spáafbrigðin byggja á mismunandi forsendum um hagvöxt til næstu fimm ára, frjósemishlutfalli og búferlaflutningum. Einnig er gerð grein fyrir þróun mannfjöldans og samsetningu á tímabilinu.
Samkvæmt miðspánni verða dánir fleiri en fæddir á hverju ári frá og með árinu 2060 en frá og með árinu 2037 samkvæmt lágspánni. Hinsvegar fæðast fleiri en deyja á hverju ári spátímabilsins samkvæmt háspánni. Meðalævi karla og kvenna við fæðingu mun halda áfram að lengjast. Nýfæddar stúlkur árið 2020 geta vænst þess að verða 84,1 ára gamlar en nýfæddir drengir 79,9 ára. Stúlkur sem fæðast árið 2068 geta vænst þess að verða 88,7 ára en drengir 84,4 ára.
Fjöldi aðfluttra verður hærri en fjöldi brottfluttra ár hvert samkvæmt öllum spáafbrigðum, fyrst og fremst vegna erlendra innflytjenda. Íslenskir ríkisborgarar sem flytja frá landinu verða áfram fleiri en þeir sem flytja til landsins. Gangi miðspáin eftir verða eftirfarandi breytingar á aldurssamsetningu mannfjöldans:
• Yfir 20% af heildarmannfjölda verða eldri en 65 ára árið 2037 og yfir 25% árið 2064.
• Frá árinu 2053 verða þeir sem eru eldri en 65 ára í fyrsta sinni fjölmennari en þeir sem eru yngri en tvítugir.
Breytingar á aldurssamsetningu mannfjöldans sjást mjög vel þegar litið er á aldurspíramída miðspárinnar í upphafi og lok spátímabilsins sem sést hér að neðan.
Þótt þjóðin sé að eldast og fólksfjölgun verði fremur hæg, þá eru Íslendingar nú, og verða enn um sinn, mun yngri en flestar Evrópuþjóðir. Árið 2060 verður meira en þriðjungur Evrópubúa eldri en 65 ára en einungis um fjórðungur Íslendinga. Gert er ráð fyrir að Íslendingar nái núverandi hlutfalli innan Evrópusambandsins, sem er 20%, árið 2030.
Mannfjöldaspá 2020–2069 - Hagtíðindi