Nú liggja fyrir tölur um íbúafjölda í einstökum sveitarfélögum hinn 1. desember 2009. Þá voru íbúar með lögheimili á Íslandi 317.593. Ári áður var íbúafjöldi 319.756 og er fækkun milli ára því um 2.163 íbúa eða 0,7%. Mest er fækkunin hlutfallslega á Austurlandi. Þar fækkaði um 431 einstakling, eða 3,3% frá fyrra ári. Svo sem sést á meðfylgjandi yfirliti, þá stafar fækkun landsmanna einkum af fækkun fólks með erlent ríkisfang en því fækkaði milli ára um 3.099 manns, en íslenskum ríkisborgurum fjölgaði um 936 frá 1. desember 2008.
Mannfjöldi eftir landsvæðum og ríkisfangi 1. desember 2008 og 2009 | ||||||
2008 | 2009 | |||||
Alls | Íslenskt ríkisfang | Erlent ríkisfang | Alls | Íslenskt ríkisfang | Erlent ríkisfang | |
Alls | 319.756 | 294.736 | 25.020 | 317.593 | 295.672 | 21.921 |
Höfuðborgarsvæði | 201.585 | 185.412 | 16.173 | 200.852 | 186.628 | 14.224 |
Suðurnes | 21.564 | 19.423 | 2.141 | 21.348 | 19.314 | 2.034 |
Vesturland | 15.720 | 14.431 | 1.289 | 15.385 | 14.297 | 1.088 |
Vestfirðir | 7.374 | 6.674 | 700 | 7.363 | 6.651 | 712 |
Norðurland vestra | 7.395 | 7.063 | 332 | 7.404 | 7.064 | 340 |
Norðurland eystra | 29.060 | 27.869 | 1.191 | 28.909 | 27.846 | 1.063 |
Austurland | 12.882 | 11.469 | 1.413 | 12.451 | 11.526 | 925 |
Suðurland | 24.176 | 22.395 | 1.781 | 23.881 | 22.346 | 1.535 |
Breytingar mannfjöldans frá fyrra ári eftir landsvæðum og ríkisfangi | ||||||
Alls | % | |||||
Alls | Íslenskt ríkisfang | Erlent ríkisfang | Alls | Íslenskt ríkisfang | Erlent ríkisfang | |
Alls | -2.163 | 936 | -3.099 | -0,7 | 0,3 | -12,4 |
Höfuðborgarsvæði | -733 | 1.216 | -1.949 | -0,4 | 0,7 | -12,1 |
Suðurnes | -216 | -109 | -107 | -1,0 | -0,6 | -5,0 |
Vesturland | -335 | -134 | -201 | -2,1 | -0,9 | -15,6 |
Vestfirðir | -11 | -23 | 12 | -0,1 | -0,3 | 1,7 |
Norðurland vestra | 9 | 1 | 8 | 0,1 | 0,0 | 2,4 |
Norðurland eystra | -151 | -23 | -128 | -0,5 | -0,1 | -10,7 |
Austurland | -431 | 57 | -488 | -3,3 | 0,5 | -34,5 |
Suðurland | -295 | -49 | -246 | -1,2 | -0,2 | -13,8 |
Mannfjöldinn 1. desember 2009 eftir trúfélögum og sóknum
Jafnframt tölum um mannfjöldann 1. desember birtir Hagstofan nú tölur um skiptingu landsmanna 16 ára og eldri eftir trúfélögum og sóknum. Hinn 1. desember síðastliðinn voru sóknarbörn í Þjóðkirkjunni 16 ára og eldri 194.903 talsins en það er fækkun um 673 frá fyrra ári. Hlutfallslega fjölgaði hins vegar sóknarbörnum Þjóðkirkjunnar úr 78,6% í 78,9% af öllum 16 ára og eldri. Þetta skýrist einkum af því að mannfækkun á árinu var mest meðal þeirra sem stóðu utan við Þjóðkirkjuna.
Ítarlegri greining á mannfjöldanum, búferlaflutningum og trúfélagsaðild verður birt á næsta ári.
Talnaefni
Sveitarfélög
Trúfélög