FRÉTT MANNFJÖLDI 22. DESEMBER 2009

Nú liggja fyrir tölur um íbúafjölda í einstökum sveitarfélögum hinn 1. desember 2009. Þá voru íbúar með lögheimili á Íslandi 317.593. Ári áður var íbúafjöldi 319.756 og er fækkun milli ára því um 2.163 íbúa eða 0,7%. Mest er fækkunin hlutfallslega á Austurlandi. Þar fækkaði um 431 einstakling, eða 3,3% frá fyrra ári. Svo sem sést á meðfylgjandi yfirliti, þá stafar fækkun landsmanna einkum af fækkun fólks með erlent ríkisfang en því fækkaði milli ára um 3.099 manns, en íslenskum ríkisborgurum fjölgaði um  936 frá 1. desember 2008.

Mannfjöldi eftir landsvæðum og ríkisfangi 1. desember 2008 og 2009    
2008 2009
  Alls Íslenskt ríkisfang Erlent ríkisfang Alls Íslenskt ríkisfang Erlent ríkisfang
Alls 319.756 294.736 25.020 317.593 295.672 21.921
Höfuðborgarsvæði 201.585 185.412 16.173 200.852 186.628 14.224
Suðurnes 21.564 19.423 2.141 21.348 19.314 2.034
Vesturland 15.720 14.431 1.289 15.385 14.297 1.088
Vestfirðir 7.374 6.674 700 7.363 6.651 712
Norðurland vestra 7.395 7.063 332 7.404 7.064 340
Norðurland eystra 29.060 27.869 1.191 28.909 27.846 1.063
Austurland 12.882 11.469 1.413 12.451 11.526 925
Suðurland 24.176 22.395 1.781 23.881 22.346 1.535

Breytingar mannfjöldans frá fyrra ári eftir landsvæðum og ríkisfangi    
Alls %
  Alls Íslenskt ríkisfang Erlent ríkisfang Alls Íslenskt ríkisfang Erlent ríkisfang
Alls -2.163 936 -3.099 -0,7 0,3 -12,4
Höfuðborgarsvæði -733 1.216 -1.949 -0,4 0,7 -12,1
Suðurnes -216 -109 -107 -1,0 -0,6 -5,0
Vesturland -335 -134 -201 -2,1 -0,9 -15,6
Vestfirðir -11 -23 12 -0,1 -0,3 1,7
Norðurland vestra 9 1 8 0,1 0,0 2,4
Norðurland eystra -151 -23 -128 -0,5 -0,1 -10,7
Austurland -431 57 -488 -3,3 0,5 -34,5
Suðurland -295 -49 -246 -1,2 -0,2 -13,8

Mannfjöldinn 1. desember 2009 eftir trúfélögum og sóknum
Jafnframt tölum um mannfjöldann 1. desember birtir Hagstofan nú tölur um skiptingu landsmanna 16 ára og eldri eftir trúfélögum og sóknum. Hinn 1. desember síðastliðinn voru sóknarbörn í Þjóðkirkjunni 16 ára og eldri 194.903 talsins en það er fækkun um 673 frá fyrra ári. Hlutfallslega fjölgaði hins vegar sóknarbörnum Þjóðkirkjunnar úr 78,6% í 78,9% af öllum 16 ára og eldri. Þetta skýrist einkum af því að mannfækkun á árinu var mest meðal þeirra sem stóðu utan við Þjóðkirkjuna.

Ítarlegri greining á mannfjöldanum, búferlaflutningum og trúfélagsaðild verður birt á næsta ári.

Talnaefni
     Sveitarfélög
     Trúfélög

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.