Hinn 1. janúar 2016 voru landsmenn 332.529 og hafði fjölgað um 3.429 frá sama tíma árið 2015. Þetta jafngildir fjölgun landsmanna um 1%. Konum og körlum fjölgaði sambærilega á árinu og voru karlar 2.011 fleiri en konur 1. janúar 2015.
Mikil fólksfjölgun var á höfuðborgarsvæðinu, en þar voru íbúar 2.333 fleiri 1. janúar 2016 en ári fyrr. Það jafngildir 1,1% fjölgun íbúa á einu ári. Hlutfallslega varð fólksfjölgunin hins vegar mest á Suðurnesjum þar sem fjölgaði um 2,2% eða 483 frá síðasta ári. Fólki fjölgaði einnig á Suðurlandi, um 445 einstaklinga (1,8%), og um 200 (1,2%) á Vesturlandi. Minni fólksfjölgun var á Norðurland eystra (0,3%). Fólksfækkun var á þremur landsvæðum, á Vestfjörðum þar sem fækkaði um 87 manns (1,2%), á Austurlandi þar sem fækkaði um 44 (0,3%) og á Norðurlandi vestra þar sem fækkaði um tvo (0,1%).
Níu sveitarfélög hafa yfir 5.000 íbúa
Hinn 1. janúar 2016 voru 74 sveitarfélög á landinu sem er óbreyttur fjöldi frá fyrra ári. Sveitarfélögin eru misstór. Alls var íbúatala sex sveitarfélaga undir 100 en undir 1.000 í 41 sveitarfélagi. Einungis níu sveitarfélög höfðu yfir 5.000 íbúa.
Í þéttbýli bjuggu 311.850 manns
Hinn 1. janúar 2016 voru 61 þéttbýlisstaður með 200 íbúa eða fleiri á landinu og hafði þeim fjölgað um einn frá fyrra ári. Auk þeirra voru 35 smærri staðir með 50–199 íbúa sem er fækkun um tvo frá fyrra ári. Í þéttbýli bjuggu 311.850 manns 1. janúar 2016 og hafði þá fjölgað um 3.335 á árinu. Í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu 20.679 manns.
Fjölskyldur
Kjarnafjölskyldur voru 79.870 hinn 1. janúar 2016 en 79.356 ári áður og má sjá skiptingu kjarnafjölskyldna eftir fjölskyldugerð á eftirfarandi mynd.
Framfærsluhlutfall
Framfærsluhlutfall var 68,1% í ársbyrjun 2016 en 68,4% ári áður. Framfærsluhlutfall er hlutfall ungs fólks (19 ára og yngra) og eldra fólks (65 ára og eldra) af fólki á vinnualdri (20–64 ára). Hækkun þessa hlutfalls stafar einkum af því að fólki á vinnualdri fækkar.
Aðferðir
Þéttbýlisstaðir eru skilgreindir óháð byggðakjörnum og þar með sveitarfélagsmörkum. Miðað er við að þéttbýlisstaðurinn hafi skýrt gatnakerfi, sérstakt heiti eða að fjarlægð milli húsa sé ekki meiri en 200 metrar. Lögð hefur verið af sú regla að allt sveitarfélagið, ef um er að ræða kaupstaði eða kauptúnahreppa, teljist til þéttbýlis, enda er langt um liðið frá því skipting landsins í kaupstaði, kauptún og sveit endurspeglaði raunverulegt þéttbýli. Þá er lögð af sú regla að meira en tveir þriðju íbúa í þéttbýli skyldu hafa atvinnu af öðru en landbúnaði. Þéttbýlisstaðir hafa að lágmarki 200 íbúa. Aðeins íbúar þéttbýlisstaða teljast til þéttbýlis.
Byggðakjarnar eru skilgreindir með sama hætti og þéttbýlisstaðir, nema að því leyti að þeir ná ekki yfir sveitarfélagsmörk og ekki eru sett nein skilyrði um lágmarksmannfjölda. Hagstofan mun þó ekki birta tölur um byggðakjarna nema að mannfjöldi í þeim nái 50 á því tímabili sem birt er.
Til kjarnafjölskyldu teljast hjón og fólk í óvígðri sambúð, börn hjá þeim 17 ára og yngri, einhleypir karlar og konur sem búa með börnum 17 ára og yngri.