Í lok 1. ársfjórðungs 2011 bjuggu 319.100 manns á Íslandi, 160.300 karlar og 158.800 konur. Landsmönnum fjölgaði um 600 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.400 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.000 manns.
Á 1. ársfjórðungi 2011 fæddust 1.100 börn, en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 15 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 270 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 260 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 320 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 620 íslenskir ríkisborgarar af 840 alls. Af þeim 380 erlendu ríkisborgurum sem fluttust brott af landinu fóru flestir til Póllands, 160 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar voru frá Danmörku (240), Noregi (130) og Svíþjóð (60), samtals 420 manns af 570. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 170 af alls 640 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst en þaðan fluttust 45 erlendir ríkisborgarar til landsins.
Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2011 | |||
Alls | Karlar | Konur | |
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs | 319.100 | 160.300 | 158.800 |
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs | 318.500 | 160.000 | 158.500 |
Breyting | 600 | 240 | 360 |
Fæddir | 1.100 | 580 | 560 |
Dánir | 540 | 280 | 260 |
Aðfluttir umfram brottflutta | -15 | -70 | 50 |
Aðfluttir | 1.200 | 620 | 580 |
Brottfluttir | 1.200 | 690 | 530 |
Talnaefni