Í lok 3. ársfjórðungs 2011 bjuggu 319.090 manns á Íslandi, 160.130 karlar og 158.960 konur. Landsmönnum fækkaði um 90 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 20.960 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.240 manns.
Á 3. ársfjórðungi fæddust 1.220 börn, en 470 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 850 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 690 umfram aðflutta, en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 160 fleiri en þeir sem fluttust til landsins. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara, en þangað fluttust 590 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.380 íslenskir ríkisborgarar af 1.730 alls. Af þeim 1.000 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 360 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (480), Noregi (190) og Svíþjóð (130), samtals 790 manns af 1.050. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara, en þaðan fluttust 180 til landsins af alls 840 erlendum innflytjendum. Þýskaland kom næst, en þaðan fluttust 60 erlendir ríkisborgarar til landsins.
Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2011 | |||
Alls | Karlar | Konur | |
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs | 319.090 | 160.130 | 158.960 |
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs | 319.180 | 160.240 | 158.940 |
Breyting | -90 | -110 | 25 |
Fæddir | 1.220 | 630 | 590 |
Dánir | 470 | 230 | 250 |
Aðfluttir umfram brottflutta | -850 | -520 | -330 |
Aðfluttir | 1.880 | 900 | 980 |
Brottfluttir | 2.730 | 1.420 | 1.310 |
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.
Talnaefni