FRÉTT MANNFJÖLDI 19. OKTÓBER 2021

Hinn 1. janúar 2021 voru 57.126 innflytjendur á Íslandi eða 15,5% mannfjöldans. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 15,2% landsmanna (55.354). Fjölgun innflytjenda heldur því áfram en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans upp í 15,5%. Innflytjendum af annarri kynslóð fjölgaði einnig á milli ára, voru 5.684 í fyrra en eru nú 6.117. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 17,1% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega á milli ára og eru nú 7,1% mannfjöldans.

Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis. Innflytjendur af annarri kynslóð eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn.

Pólverjar fjölmennastir innflytjenda
Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn voru 20.520 innflytjendur frá Póllandi eða 35,9% allra innflytjenda. Þar á eftir koma einstaklingar frá Litháen (5,7%) og Filippseyjum (3,7%). Pólskir karlar eru 37,9% allra karlkyns innflytjenda eða 11.871 af 31.339. Litháískir karlar eru næst fjölmennastir (6,4%) og síðan koma karlar með uppruna frá Rúmeníu (4,6%). Pólskar konur eru 33,5% kvenkyns innflytjenda, næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (5,6%) og þá konur frá Litháen (4,9%).

27,7% íbúa á Suðurnesjum innflytjendur
Hinn 1. janúar síðastliðinn bjuggu 40.943 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða 64,7% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum en þar voru 27,7% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 20,5% mannfjöldans voru innflytjendur og börn þeirra. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra en þar voru 9,5% mannfjöldans innflytjendur og börn þeirra.

395 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang árið 2020
Í fyrra fengu 395 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt og er það nokkur fækkun frá fyrra ári þegar 437 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim 395 einstaklingum sem fengu íslenskt ríkisfang höfðu langflestir áður verið með pólskt ríkisfang eða 134 og næstflestir verið með ríkisfang frá Thailandi (19). Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt ríkisfang en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meirihluta nýrra íslenskra ríkisborgara. Það átti einnig við árið 2020 þegar 227 konur fengu íslenskan ríkisborgararétt en 168 karlar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.