FRÉTT MANNFJÖLDI 11. DESEMBER 2025

Innflytjendur á Íslandi voru 73.795 eða 18,9% mannfjöldans þann 1. janúar 2025. Innflytjendum hefur haldið áfram að fjölga en þeir voru 18,2% landsmanna (69.690) í fyrra. Frá árinu 2012 hefur hlutfallið farið úr 7,4% mannfjöldans upp í 18,9%. Innflytjendum af annarri kynslóð fjölgaði einnig á milli ára, voru 7.352 í byrjun árs 2024 en 7.839 árið 2025. Samanlagt var fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 21% af mannfjöldanum og hafði það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega á milli ára og voru 7,3% mannfjöldans.

Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis. Innflytjendur af annarri kynslóð eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn.

Pólverjar fjölmennastir
Eins og síðustu ár reyndust Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Innflytjendur frá Póllandi voru þannig 22.925 eða 31,1% allra innflytjenda þann 1. janúar síðastliðinn. Þar á eftir komu einstaklingar frá Úkraínu (5,6%) og Litháen (5,2%). Pólskir karlar voru 32,7% allra karlkyns innflytjenda eða 13.033 af 39.906. Litháískir karlar voru næst fjölmennastir (6,1%) og síðan komu karlar með uppruna frá Rúmeníu (5,6%). Pólskar konur voru 29,2% kvenkyns innflytjenda, næst á eftir þeim komu konur frá Úkraínu (6,9%) og þá konur frá Filippseyjum (5,3%).

33,1% íbúa á Suðurnesjum innflytjendur
Þann 1. janúar síðastliðinn bjuggu 52.834 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða 64,7% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum en þar voru 33,1% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst var hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 24,5% mannfjöldans voru innflytjendur og börn þeirra. Lægst var hlutfallið á Norðurlandi vestra en þar voru 11,5% mannfjöldans innflytjendur og börn þeirra.

638 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang árið 2024
Árið 2024 fengu 638 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt sem var svipaður fjöldi og á fyrra ári þegar 649 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim 638 einstaklingum sem fengu íslenskt ríkisfang höfðu langflestir áður verið með pólskt ríkisfang eða 110 og næstflestir verið með ríkisfang frá Filippseyjum (37). Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt ríkisfang en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meirihluta þeirra sem fengið hafa íslenskan ríkisborgararétt. Það átti einnig við árið 2024 þegar 351 kona fékk íslenskan ríkisborgararétt en 287 karlar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.