Í lok fjórða ársfjórðungs 2025 bjuggu 394.530 manns á Íslandi, 202.220 karlar, 192.090 konur og kynsegin/annað voru 210. Landsmönnum fjölgaði um 1.370 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 252.080 manns en 142.450 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 70.420 eða 17,8% af heildarmannfjöldanum.
Á fjórða ársfjórðungi 2025 fæddust 1.080 börn, en 690 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 990 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 200 umfram brottflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 790 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.