Mannfjöldi á Íslandi 1. janúar 2022 var 376.248 og hafði íbúum fjölgað um 7.456 frá 1. janúar 2021 eða um 2,0%. Alls voru 193.095 karlar og 183.153 konur búsettar á landinu í upphafi ársins og fjölgaði körlum um 2,1% árið 2021 en konum um 1,9%.
Hlutfallsleg fólksfjölgun mest á Suðurlandi
Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 4.354 fleiri 1. janúar 2022 en fyrir ári. Það jafngildir 1,8% fjölgun íbúa á einu ári. Hlutfallsleg fólksfjölgun var mest á Suðurlandi þar sem fjölgaði um 3,3% á síðasta ári eða 1.049 manns. Fólki fjölgaði einnig yfir landsmeðaltali á Suðurnesjum um 913 einstaklinga (3,2%). Minni hlutfallsleg fólksfjölgun var á Vesturlandi (1,9%), Norðurlandi eystra (1,8%), Austurlandi (1,7%) og á Vestfjörðum (1,4%). Minnst fjölgun varð á Norðurlandi vestra en þar fjölgaði einungis um fimm einstaklinga eða 0,07%.
Íbúum fækkaði í 27 af 69 sveitarfélögum
Sveitarfélög á Íslandi voru alls 69 1. janúar 2022 en það var sami fjöldi og árið áður enda áttu engar sameiningar sér stað á árinu 2021. Reykjavík var fjölmennasta sveitarfélagið með 135.688 íbúa en Árneshreppur á Ströndum það fámennasta með 42 íbúa. Alls höfðu 36 sveitarfélög færri en 1.000 íbúa en í aðeins ellefu sveitarfélögum voru 5.000 íbúar eða fleiri.
Árið 2021 fækkaði íbúum í 18 af 69 sveitarfélögum landsins og var fækkunin hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi (14,2%). Af ellefu stærstu sveitarfélögunum með 5.000 íbúa eða fleiri fjölgaði hlutfallslega mest í Garðabæ (4,3%), Reykjanesbæ (3,8%) og Sveitarfélaginu Árborg (3,7%). Fjölgun var einnig yfir landsmeðaltali í Mosfellsbæ (3,5%), Fjarðabyggð (2,5%) og Akureyrarbæ (2,2%) en fjölgun var undir landsmeðaltali í Akraneskaupstað (1,9%), Reykjavíkurborg (1,8%), Kópavogsbæ (1,7%) og Múlaþingi (0,7%). Af 11 stærstu sveitarfélögunum fjölgaði minnst í Hafnarfjarðarkaupsstað (0,3%).
63% mannfjöldans á Stór-Reykjavíkursvæðinu
Um 63% mannfjöldans bjó á Stór-Reykjavíkursvæðinu 1. janúar 2022, þ.e. samfelldri byggð frá Hafnarfirði til Mosfellsbæjar, alls 236.518. Næst stærsta þéttbýlið var í Keflavík og Njarðvík, þar sem bjuggu 20.298 íbúar en á Akureyri og nágrenni bjuggu 19.573 íbúar þann 1. janúar 2022. Í strjálbýli bjuggu 21.745 einstaklingar, eða 5,8% mannfjöldans, en með strjálbýli er átt við sveit eða byggðakjarna með færri en 200 íbúa.
Talnaefni
Yfirlit
Sveitarfélög og byggðakjarnar
Fjölskyldan