FRÉTT MANNFJÖLDI 09. MARS 2023

Mannfjöldi á Íslandi 1. janúar 2023 var 387.758 og hafði íbúum fjölgað um 11.510 frá 1. janúar 2022, eða um 3,1%. Er það mesta fjölgun síðan árið 1734 eða eins langt og mannfjöldatölur fyrir Ísland ná. Alls voru 199.826 karlar, 187.800 konur og 132 kynsegin/annað búsett á landinu í upphafi ársins og fjölgaði körlum um 3,5% árið 2022, konum um 2,6% og kynsegin/annað um 80,8%.

Hlutfallsleg fólksfjölgun mest á Suðurnesjum
Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 6.651 fleiri 1. janúar 2023 en fyrir ári. Það jafngildir 2,8% fjölgun íbúa á einu ári. Hlutfallsleg fólksfjölgun var mest á Suðurnesjum þar sem fjölgaði um 6,7% á síðasta ári eða 1.941 manns. Fólki fjölgaði einnig yfir landsmeðaltali á Suðurlandi, eða um 1.368 einstaklinga (4,2%) og á Vesturlandi (3.1%). Minni hlutfallsleg fólksfjölgun var á Vestfjörðum (2,4%), Norðurlandi eystra (2,0%) og Austurlandi (1,8%). Minnst fjölgun var á Norðurlandi vestra en þar fjölgaði einungis um 27 einstaklinga, eða 0,4%.

Íbúum fækkaði í 8 af 64 sveitarfélögum
Sveitarfélög á Íslandi voru alls 64 þann 1. janúar 2023 og hafði þeim fækkað um fimm frá fyrra ári. Reykjavík var fjölmennasta sveitarfélagið með 139.875 íbúa en Árneshreppur á Ströndum var fámennast með 47 íbúa. Alls höfðu 29 sveitarfélög færri en 1.000 íbúa en í ellefu sveitarfélögum voru 5.000 íbúar eða fleiri.

Árið 2022 fækkaði íbúum í 8 af 64 sveitarfélögum landsins og var fækkunin hlutfallslega mest í Fljótsdalshreppi (6,8%). Af ellefu stærstu sveitarfélögunum, með 5.000 íbúa eða fleiri, fjölgaði hlutfallslega mest í Reykjanesbæ (8,0%), Sveitarfélaginu Árborg (3,7%) og í Mosfellsbæ og Reykjavíkurborg sem héldu í við fólksfjölgun á landsvísu (3,1%). Af 11 stærstu sveitarfélögunum fjölgaði minnst í Fjarðabyggð (1,1%).

63% mannfjöldans á Stór-Reykjavíkursvæðinu
Um 63% mannfjöldans bjó á Stór-Reykjavíkursvæðinu 1. janúar 2023, þ.e. samfelldri byggð frá Hafnarfirði til Mosfellsbæjar, alls 242.995. Næst stærsta þéttbýlið var í Keflavík og Njarðvík, þar sem bjuggu 21.950 íbúar og á Akureyri og nágrenni, eða 19.887 íbúar. Alls bjuggu 22.752 einstaklingar í strjálbýli, eða 5,9% mannfjöldans, en með strjálbýli er átt við sveit eða byggðakjarna með færri en 200 íbúa.

Talnaefni
Yfirlit
Sveitarfélög og byggðakjarnar
Fjölskyldan

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.