FRÉTT MANNFJÖLDI 09. MAÍ 2016

Í lok 1. ársfjórðungs 2016 bjuggu 334.300 manns á Íslandi, 168.360 karlar og 165.930 konur og hafði landsmönnum fjölgað um 1.540 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 214.740 manns en 119.560 utan höfuðborgarsvæðis.

Á 1. ársfjórðungi 2016 fæddust 980 börn, en 590 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.000 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 110 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.110 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 190 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 460 íslenskir ríkisborgarar af 710 alls. Af þeim 540 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 130 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (170), Noregi (150) og Svíþjóð (110), samtals 440 manns af 600. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 610 til landsins af alls 1.650 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 100 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fyrsta ársfjórðungs bjuggu 27.660 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 8,3% af mannfjöldanum.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2016  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 334.300 168.360 165.930
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 332.750 167.410 165.340
Breyting 1.540 950 590
Fæddir 980 500 480
Dánir 590 320 270
Aðfluttir umfram brottflutta 1.000 700 300
Aðfluttir 2.240 1.330 910
Brottfluttir 1.240 630 610
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.