FRÉTT MANNFJÖLDI 04. MAÍ 2017

Í lok 1. ársfjórðungs 2017 bjuggu 340.110 manns á Íslandi, 172.180 karlar og 167.930 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.660 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 218.090 manns en 122.020 utan þess.

Á 1. ársfjórðungi 2017 fæddust 940 börn, en 600 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.300 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 130 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.170 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 160 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 330 íslenskir ríkisborgarar af 560 alls. Af þeim 620 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 180 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (210), Noregi (190) og Svíþjóð (80), samtals 490 manns af 680. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 570 til landsins af alls 1.790 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 160 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 31.470 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2017
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 340.110 172.180 167.930
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 338.450 171.110 167.330
Breyting 1.660 1.070 600
Fæddir 940 490 450
Dánir 600 280 330
Aðfluttir umfram brottflutta 1.300 850 450
Aðfluttir 2.470 1.480 1.000
Brottfluttir 1.180 630 550
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.