FRÉTT MANNFJÖLDI 02. MAÍ 2018

Í lok 1. ársfjórðungs 2018 bjuggu alls 350.710 manns á Íslandi, 178.980 karlar og 171.730 konur. Landsmönnum fjölgaði um 2.120 á ársfjórðungnum eða um 0,6%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 224.000 manns en 126.710 utan þess.

Alls fæddust 970 börn á 1. ársfjórðungi 2018, en 600 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.740 fleiri einstaklingar til landsins en frá því. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 20 umfram brottflutta. Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.720 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 150 manns á 1. ársfjórðungi 2018. Alls fluttust 560 íslenskir ríkisborgarar frá landinu og af þeim fluttust 370 til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Af þeim 810 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 300 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (190), Noregi (120) og Svíþjóð (90), samtals 400 manns af 580. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 770 til landsins af alls 2.530 erlendum innflytjendum. Litháen (Lietuva) kom næst, en þaðan fluttust 320 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 39.570 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2018
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungsins 350.710 178.980 171.730
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungsins 348.580 177.680 170.910
Breyting 2.120 1.300 820
Fæddir 970 520 450
Dánir 600 300 300
Aðfluttir umfram brottflutta 1.740 1.090 660
Aðfluttir 3.110 1.920 1.190
Brottfluttir 1.370 840 530
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.