FRÉTT MANNFJÖLDI 27. APRÍL 2023

Í lok fyrsta ársfjórðungs 2023 bjuggu 390.830 manns á Íslandi, 201.580 karlar, 189.110 konur og kynsegin/annað voru 150. Landsmönnum fjölgaði um 3.030 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 249.240 manns en 141.600 á landsbyggðinni. Á fyrsta ársfjórðungi 2023 fæddust 1.030 börn en 670 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 2.700 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 90 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 2.790 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 150 manns á fyrsta ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 280 íslenskir ríkisborgarar af 480 alls. Af þeim 1.010 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 320 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (140), Noregi (60) og Svíþjóð (80), samtals 280 manns af 390. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 1.050 til landsins af alls 3.800 erlendum innflytjendum. Úkraína kom næst en þaðan fluttust 450 erlendir ríkisborgarar til landsins. Erlendir ríkisborgarar voru 67.840 eða 17,4% af heildarmannfjöldanum.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.