Í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 bjuggu 395.050 manns á Íslandi, 202.560 karlar, 192.260 konur og kynsegin/annað voru 230. Landsmönnum fjölgaði um 520 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 252.580 manns en 142.470 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 70.650 eða 17,9% af heildarmannfjöldanum.
Á fyrsta ársfjórðungi 2026 fæddust 1.110 börn en 640 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 240 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 210 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 450 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.