FRÉTT MANNFJÖLDI 24. JÚLÍ 2014

Í lok 2. ársfjórðungs 2014 bjuggu 327.050 manns á Íslandi, 164.130 karlar og 162.920 konur. Landsmönnum fjölgaði um 700 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 23.080 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 209.680 manns.
 
Á 2. ársfjórðungi 2014 fæddust 1.050 börn, en 480 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 130 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 10 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 130 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 190 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 430 íslenskir ríkisborgarar af 650 alls. Af þeim 680 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 140 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (160), Noregi (160) og Svíþjóð (110), samtals 430 manns af 660. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 270 til landsins af alls 800 erlendum innflytjendum. Spánn kom næst, en þaðan fluttust 45 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 2. ársfjórðungi 2014  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 327.050 164.130 162.920
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 326.340 163.660 162.680
Breyting 700 460 240
Fæddir 1.050 540 510
Dánir 480 230 250
Aðfluttir umfram brottflutta 130 160 -25
Aðfluttir 1.460 840 630
Brottfluttir 1.330 680 650
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.