FRÉTT MANNFJÖLDI 27. JÚLÍ 2015

Í lok 2. ársfjórðungs 2015 bjuggu 330.610 manns á Íslandi, 166.170 karlar og 164.440 konur. Landsmönnum fjölgaði um 870 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 25.090 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 212.120 manns.
 
Á 2. ársfjórðungi 2015 fæddust 1.050 börn, en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 350 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 120 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 470 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 170 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 480 íslenskir ríkisborgarar af 680 alls. Af þeim 570 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 140 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (140), Noregi (120) og Svíþjóð (100), samtals 360 manns af 550. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 340 til landsins af alls 1.050 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 60 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 2. ársfjórðungi 2015  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 330.610 166.170 164.440
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 329.740 165.650 164.090
Breyting 870 520 350
Fæddir 1.050 550 510
Dánir 540 280 260
Aðfluttir umfram brottflutta 350 250 100
Aðfluttir 1.600 920 680
Brottfluttir 1.250 670 580
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.