FRÉTT MANNFJÖLDI 01. ÁGÚST 2017

Í lok 2. ársfjórðungs 2017 bjuggu 343.960 manns á Íslandi, 174.810 karlar og 169.150 konur. Landsmönnum fjölgaði um 3.850 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 219.900 manns.

Á 2. ársfjórðungi fæddust 1.000 börn, en 550 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 3.400 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 270 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 3.130 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 130 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 270 íslenskir ríkisborgarar af 430 alls. Af þeim 590 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 150 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar voru frá Danmörku (170), Noregi (190) og Svíþjóð (110), samtals 480 manns af 710. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 1.670 til landsins af alls 3.720 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 490 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok 2. ársfjórðungs bjuggu 34.460  erlendir ríkisborgarar á Íslandi.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 2. ársfjórðungi 2017
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 343.960 174.810 169.150
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 340.110 172.180 167.930
Breyting 3.850 2.630 1.220
Fæddir 1.000 520 480
Dánir 550 280 270
Aðfluttir umfram brottflutta 3.400 2.390 1.010
Aðfluttir 4.420 2.940 1.480
Brottfluttir 1.020 560 470
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.