FRÉTT MANNFJÖLDI 04. OKTÓBER 2024

Samtals bjuggu 386.970 manns á Íslandi í lok annars ársfjórðungs 2024. Þar af 198.360 karlar, 188.420 konur og kynsegin/annað voru 180. Landsmönnum fjölgaði um 2.230 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 246.770 manns en 140.200 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 65.870 eða 17,0% af heildarmannfjöldanum.

Aðferð við mat á mannfjölda var endurskoðuð í mars 2024 og hafa tímaraðir nú verið uppfærðar frá og með árinu 2011.

Á öðrum ársfjórðungi fæddust 1.090 börn en 640 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.780 einstaklingar til landsins umfram brottflutta og skiptist það jafnt á milli karla og kvenna (890). Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 180 umfram brottflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.600 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.

Ný aðferð við mat á íbúafjölda á Íslandi
Hagstofa Íslands hefur endurbætt aðferð sína við útreikninga á mannfjölda. Hingað til hefur íbúafjöldi eingöngu byggt á skráningu lögheimilis í þjóðskrá. Ný aðferð byggir á breiðari grunni opinberra gagna, skattagögnum og nemendagögnum auk þjóðskrár.

Ný aðferð við mat á íbúafjölda á Íslandi - Greinargerð

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.