FRÉTT MANNFJÖLDI 31. JÚLÍ 2026

Í lok annars ársfjórðungs 2026 bjuggu 396.500 manns á Íslandi, 203.080 karlar, 193.180 konur og kynsegin/annað voru 230. Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 253.230 manns en 143.270 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 71.130 eða 17,9% af heildarmannfjöldanum.

Á öðrum ársfjórðungi 2026 fæddust 1.130 börn en 590 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 930 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 240 umfram brottflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 700 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.