Í lok 3. ársfjórðungs 2015 bjuggu 331.310 manns á Íslandi, 166.590 karlar og 164.720 konur. Landsmönnum fjölgaði um 700 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 212.820 manns en 118.490 utan þess.
Á 3. ársfjórðungi 2015 fæddust 1.130 börn, en 530 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 80 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 640 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 720 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri konur en karlar fluttust frá landinu.
Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 550 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.290 íslenskir ríkisborgarar af 1.640 alls. Af þeim 600 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 130 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (270), Noregi (250) og Svíþjóð (220), samtals 730 manns af 1.010. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 370 til landsins af alls 1.320 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 80 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok þriðja ársfjórðungs bjuggu 25.630 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.
Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2015 | |||
Alls | Karlar | Konur | |
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs | 331.310 | 166.590 | 164.720 |
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs | 330.610 | 166.170 | 164.440 |
Breyting | 700 | 420 | 270 |
Fæddir | 1.130 | 580 | 550 |
Dánir | 530 | 260 | 270 |
Aðfluttir umfram brottflutta | 80 | 100 | -20 |
Aðfluttir | 2.320 | 1.220 | 1.110 |
Brottfluttir | 2.240 | 1.120 | 1.130 |
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar. |