FRÉTT MANNFJÖLDI 03. NÓVEMBER 2015

Í lok 3. ársfjórðungs 2015 bjuggu 331.310 manns á Íslandi, 166.590 karlar og 164.720 konur. Landsmönnum fjölgaði um 700 á ársfjórðungnum.  Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 212.820 manns en 118.490 utan þess.

Á 3. ársfjórðungi 2015 fæddust 1.130 börn, en 530 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 80 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 640 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 720 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri konur en karlar fluttust frá landinu.

 

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 550 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.290 íslenskir ríkisborgarar af 1.640 alls. Af þeim 600 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 130 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (270), Noregi (250) og Svíþjóð (220), samtals 730 manns af 1.010. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 370 til landsins af alls 1.320 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 80 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok þriðja ársfjórðungs bjuggu 25.630 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2015  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 331.310 166.590 164.720
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 330.610 166.170 164.440
Breyting 700 420 270
Fæddir 1.130 580 550
Dánir 530 260 270
Aðfluttir umfram brottflutta 80 100 -20
Aðfluttir 2.320 1.220 1.110
Brottfluttir 2.240 1.120 1.130
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.