Í lok 3. ársfjórðungs 2016 bjuggu 337.610 manns á Íslandi, 170.510 karlar og 167.100 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.550 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 216.300 manns en 121.310 utan þess.
Á 3. ársfjórðungi 2016 fæddust 1.150 börn, en 580 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 950 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 290 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.240 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri konur en karlar fluttust frá landinu.
Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 500 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.050 íslenskir ríkisborgarar af 1.410 alls. Af þeim 1.060 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 250 manns.
Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2016 | |||
Alls | Karlar | Konur | |
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs | 337.610 | 170.510 | 167.100 |
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs | 336.060 | 169.540 | 166.520 |
Breyting | 1.550 | 970 | 580 |
Fæddir | 1.150 | 560 | 590 |
Dánir | 580 | 310 | 280 |
Aðfluttir umfram brottflutta | 950 | 690 | 260 |
Aðfluttir | 3.420 | 1.900 | 1.520 |
Brottfluttir | 2.470 | 1.210 | 1.260 |
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar. |
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (260), Noregi (310) og Svíþjóð (180), samtals 750 manns af 1.120. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 710 til landsins af alls 2.300 erlendum innflytjendum. Litháen (Lietuva) kom næst, en þaðan fluttust 180 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok þriðja ársfjórðungs bjuggu 29.990 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.