FRÉTT MANNFJÖLDI 27. OKTÓBER 2020

Í lok 3. ársfjórðungs 2020 bjuggu 368.010 manns á Íslandi, 188.790 karlar og 179.220 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.320 á ársfjórðungnum eða um 0,4%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 235.870 manns en 132.140 utan þess.

Flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara jákvæður
Alls fæddust 1.280 börn á þriðja ársfjórðungi 2020, en 520 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 550 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 150 umfram brottflutta og aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 410 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust til Póllands
Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 420 manns á þriðja ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 730 íslenskir ríkisborgarar af 960 alls. Af þeim 2.040 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands eða 650 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (270), Noregi (140) og Svíþjóð (190), samtals 610 manns af 1.110. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 630 til landsins af alls 2.440 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 190 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok þriðja ársfjórðungs bjuggu 51.120 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 13,9% af heildarmannfjölda.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2020
 AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs368.010188.790179.220
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs366.700188.330178.370
Breyting1.320460860
Fæddir1.280660610
Dánir520270260
Aðfluttir umfram brottflutta55070490
Aðfluttir3.5501.9301.620
Brottfluttir3.0001.8601.140

Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.