FRÉTT MANNFJÖLDI 02. NÓVEMBER 2021

Samtals bjuggu 374.830 manns á Íslandi í lok þriðja ársfjórðungs 2021, 192.210 karlar og 182.620 konur. Kynhlutlausir voru 55 en vegna smæðar hópsins er honum dreift af handahófi á milli karla og kvenna. Landsmönnum fjölgaði um 3.260 á ársfjórðungnum, á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 240.050 manns en 134.780 á landsbyggðinni.

Á þriðja ársfjórðungi 2021 fæddust 1.310 börn og hafa fæðingar á einum ársfjórðungi ekki verið fleiri frá byrjun útgáfu ársfjórðungstalna í janúar 2010. Alls létust 580 einstaklingar á þriðja ársfjórðungi. Á sama tíma fluttust 2.530 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 340 umfram brottflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 2.190 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Svíþjóð var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 190 manns á þriðja ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 330 íslenskir ríkisborgarar af 560 alls. Af þeim 1.000 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 350 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (260), Noregi (140) og Svíþjóð (200), samtals 600 manns af 900. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 720 til landsins af alls 3.200 erlendum innflytjendum. Rúmenía kom næst en þaðan fluttust 230 erlendir ríkisborgarar til landsins. Erlendir ríkisborgarar voru 54.140 eða 14,4% af heildarmannfjöldanum.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2021 
 AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs374.830192.210182.620
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs371.580190.480181.100
Breyting3.2601.7301.530
Fæddir1.310650660
Dánir580300280
Aðfluttir umfram brottflutta2.5301.3801.150
Aðfluttir4.0902.2101.880
Brottfluttir1.560840720
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.