FRÉTT MANNFJÖLDI 12. NÓVEMBER 2024

Samtals bjuggu 388.790 manns á Íslandi í lok þriðja ársfjórðungs 2024, 199.340 karlar, 189.250 konur og kynsegin/annað voru 190. Landsmönnum fjölgaði um 1.820 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 248.190 manns en 140.600 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 67.330 eða 17,3% af heildarmannfjöldanum.

Aðferð við mat á mannfjölda var endurskoðuð í mars 2024 og hafa tímaraðir nú verið uppfærðar frá og með árinu 2011.

Á þriðja ársfjórðungi 2024 fæddust 1.130 börn, en 630 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.300 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 140 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.430 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Ný aðferð við mat á íbúafjölda á Íslandi
Hagstofa Íslands hefur endurbætt aðferð sína við útreikninga á mannfjölda. Hingað til hefur íbúafjöldi eingöngu byggt á skráningu lögheimilis í þjóðskrá. Ný aðferð byggir á breiðari grunni opinberra gagna, skattagögnum og nemendagögnum auk þjóðskrár.

Ný aðferð við mat á íbúafjölda á Íslandi — Greinargerð gefin út 21. mars 2024

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.