FRÉTT MANNFJÖLDI 31. OKTÓBER 2025

Í lok þriðja ársfjórðungs 2025 bjuggu 393.160 manns á Íslandi, 201.500 karlar, 191.450 konur og kynsegin/annað voru 210. Landsmönnum fjölgaði um 1.350 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 250.800 manns en 142.360 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 69.670 eða 17,7% af heildarmannfjöldanum.

Á þriðja ársfjórðungi 2025 fæddust 1.140 börn en 650 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 860 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 70 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 930 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.