FRÉTT MANNFJÖLDI 31. JANÚAR 2020

Í lok 4. ársfjórðungs 2019 bjuggu 364.260 manns á Íslandi, 186.960 karlar og 177.300 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.400 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 233.140 manns og 131.120 utan þess.

Á 4. ársfjórðungi 2019 fæddust 1.120 börn, en 610 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 900 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 50 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 840 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 100 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 250 íslenskir ríkisborgarar af 460 alls. Af þeim 1.200 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 420 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (180), Noregi (90) og Svíþjóð (100), samtals 380 manns af 520. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 570 til landsins af alls 2.040 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 150 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 49.500 erlendir ríkisborgarar á Íslandi, eða 13,6% af heildarmannfjölda.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 4. ársfjórðungi 2019
 AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungsins364.260186.960177.300
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungsins362.860186.220176.640
Breyting1.400740660
Fæddir1.120570550
Dánir610320290
Aðfluttir umfram brottflutta900490410
Aðfluttir2.5601.4601.100
Brottfluttir1.660970700
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.