FRÉTT MANNFJÖLDI 20. JANÚAR 2023

Samtals bjuggu 387.800 manns á Íslandi í lok fjórða ársfjórðungs 2022, 199.840 karlar, 187.840 konur og kynsegin/annað voru 130. Landsmönnum fjölgaði um 2.570 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 247.590 manns en 140.210 á landsbyggðinni.

Á fjórða ársfjórðungi 2022 fæddust 1.040 börn en 650 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 2.120 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 60 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 2.170 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 110 manns á fjórða ársfjórðungi 2022. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 230 íslenskir ríkisborgarar af 430 alls. Af þeim 1.150 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 340 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (140), Noregi (40) og Svíþjóð (70), samtals 240 manns af 380. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 720 til landsins af alls 3.320 erlendum innflytjendum. Úkraína kom næst en þaðan fluttust 580 erlendir ríkisborgarar til landsins. Erlendir ríkisborgarar voru 65.090 eða 16,8% af heildarmannfjöldanum.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.