FRÉTT MANNFJÖLDI 04. FEBRÚAR 2025

Í lok fjórða ársfjórðungs 2024 bjuggu 389.450 manns á Íslandi, 199.620 karlar, 189.620 konur og kynsegin/annað voru 200. Landsmönnum fjölgaði um 660 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 249.050 manns en 140.400 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 67.580 eða 17,4% af heildarmannfjöldanum.

Á fjórða ársfjórðungi 2024 fæddust 1.050 börn en 650 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 290 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 80 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 370 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.