FRÉTT MANNFJÖLDI 22. ÁGÚST 2013

Út er komin spá Hagstofu Íslands um mannfjölda 2013–2060 í ritröðinni Hagtíðindi. Gerð eru þrjú afbrigði af spánni, svokölluð lágspá, miðspá og háspá. Afbrigðin miðast við ólíkar forsendur um fjölda barna á ævi hverrar konu og búferlaflutninga.

Í miðspá mannfjöldaspárinnar er gert ráð fyrir að mannfjöldi á Íslandi verði 430.545 hinn 1. janúar 2060. Til samanburðar er mannfjöldi nú 323.810. Í lágspánni verða íbúar 387.597 í lok spátímabilsins en 490.976 samkvæmt háspánni.

Gert er ráð fyrir jákvæðum flutningsjöfnuði allt spátímabilið frá 2013 fram til 2060.

Í miðspá og háspá er gert ráð fyrir náttúrlegri fólksfjölgun út spátímabilið. Með náttúrlegri fólksfjölgun er átt við fleiri fædda en dána. Samkvæmt lágspánni verða dánir hins vegar fleiri en fæddir frá og með árinu 2052. Þá verður fjölgun íbúa eingöngu rakin til jákvæðs flutningsjafnaðar.

Meðalævi mun halda áfram að lengjast bæði hjá körlum og konum. Nýfæddir drengir geta vænst þess að verða 80,8 ára nú en meðalævilengd þeirra verður 86,8 ár í lok spátímabilsins. Nýfæddar stúlkur geta vænst þess nú að verða 83,9 ára en spáð er að sá aldur verði kominn í 88,2 ár í lok spátímabilsins.

Spá um mannfjölda 2013-2060 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.