Meirihluti barna á Íslandi var skráður í formlegt íþróttastarf á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands á árinu 2025. Meðal drengja var hlutfallið tæplega 68% en rúmlega 63% hjá stúlkum. Hæst var hlutfallið í aldursflokknum 6–9 ára (tæp 87%) en lægst (um 46%) í elsta aldurshópnum (16–17 ára). Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum hagtölum Hagstofu Íslands um skráningar barna í formlegt íþróttastarf.
Skráningarhlutfall eftir tekjutíundum
Þegar skráning barna í íþróttir er skoðuð eftir fjölskyldutekjum kemur í ljós að hlutfallið er lægst fyrir tekjulægri fjölskyldur eða rúmlega 51% en um 76% fyrir fjölskyldur í hæstu tekjutíund. Um er að ræða ráðstöfunartekjur úr skattframtölum einstaklinga sem tengdar eru við einstaklinga í kjarnafjölskyldum.
Skráningarhlutfall eftir fjölskyldugerðum
Börn í fjölskyldum með tveimur fullorðnum voru líklegri til að vera skráð í íþróttastarf miðað við börn einstæðra foreldra eða 67,6% á móti 59%. Ef hlutfallið er skoðað eftir aldri barna þá eru líkurnar alltaf lægri fyrir börn einstæðra foreldra. Mestur er munurinn á aldrinum 13–15 ára þar sem hlutfall skráðra barna einstæðra foreldra er 54,9% en 68,7% þegar tveir eða fleiri fullorðnir eru á heimilinu. Í þessum aldurshópi er munurinn á skráningarhlutfalli eftir fjölskyldugerð 13,8 prósentustig, sami munur er 12,2 prósentustig fyrir elsta aldurshópinn en er 8 prósentustig eða lægri fyrir yngri aldurshópa.
Um gögnin
Hagtölur um skráningarhlutfall barna í íþróttum er samstarfsverkefni Hagstofu Íslands, Umboðsmanns barna, Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands. Fyrirhugað er að birta framvegis árlega tölur um skráningar barna í íþróttum. Frekari upplýsingar um gögnin og vinnslu þeirra má sjá í lýsigögnum.