FRÉTT MENNING 24. MARS 2015

Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands var 375 þúsund á síðasta leikári. Það jafngildir því að hver landsmaður hafi farið einu sinni í leikhús á leikárinu. Sýningargestum fækkaði um 22 þúsund frá fyrra leikári. Heildarfjöldi gesta leikhúsa, leikhópa og félaga á leikárunum 2000/2001– 2013/2014 er sýndur á mynd 1. Inni í tölum um aðsókn eru gestir á sýningar leikhúsa, leikhópa og leikfélaga og á innlendar og erlendar gestasýningar.

 

Sveiflur í aðsókn milli einstakra ára ráðast vafalaust af talsverðu leyti af verkefnavali frá ári til árs. Ef miðað er við aðsókn að leiksýningum að jafnaði síðast liðin fimm leikár í samanburði við næstu fimm leikár á undan má ljóst vera að leikhúsið heldur velli þrátt fyrir fjölbreyttara og stóraukið úrval afþreyingar sem fólki stendur til boða. Aðsókn að leiksýningum síðast liðin fimm leikár og næstu fimm leikár á undan var nánast sú sama, eða 395 þúsund gestir að jafnaði á leikárunum 2009/2010-2013/2014 á móti 397 þúsund gestum leikárin 2004/2005-2008/2009.

Aðsókn að leiksýningum er í raun nokkru hærri en hér kemur fram þar sem upplýsingar um aðsókn að sýningum Leikfélags Akureyrar vantar fyrir síðustu fjögur leikár. Aðsókn að sýningum áhugaleikfélaga á síðasta leikári er áætluð.

Leikhús
Á síðasta leikári voru starfrækt fimm atvinnuleikhús með aðstöðu í fjórum leikhúsum. Á vegum þeirra voru 11 leiksvið sem rúmuðu 3.706 gesti í sæti. Leikhúsin settu á svið 65 uppfærslur á eigin vegum eða í samstarfi við aðra. Af tegund einstakra verka sem voru færð á fjalirnar voru leikrit flest, eða 38 talsins. Uppfærslur með verkum eftir íslenska höfunda voru 32, en eftir erlenda 21. Uppfærslur sem samanstóðu af verkum eftir innlenda og erlenda höfunda voru 12 talsins. Samanlagður fjöldi sýninga í leikhúsum á síðasta leikári var 1.047, eða litlu færri en á fyrra leikári. Sýningargestir í leikhúsum voru 271.046, eða ríflega 23 þúsund færri en á fyrra leikári (sjá mynd 2).

 

Aðsóknarhæsta uppfærsla síðasta leikárs á vegum leikhúsa var söngleikurinn Mary Poppins með ríflega 40 þúsund gesti á vegum Leikfélags Reykjavíkur/Borgarleikhússins.

Atvinnuleikhópar
Atvinnuleikhópar sem settu upp eina eða fleiri leiksýningu á síðasta leikári voru 56 talsins. Atvinnuleikhópum hefur fækkað nokkuð á undanförnum árum, eða um 23 þegar þeir voru flestir leikárið 2010/2011 eða 79 talsins. Á síðasta leikári settu hóparnir á svið 76 uppfærslu innanlands. Leikrit og verk eftir innlenda höfunda voru uppistaðan í uppfærslum atvinnuleikhópa. Atvinnuleikhópar sýndu 629 sinnum innanlands á leikárinu. Heildaraðsókn að sýningum atvinnuleikhópa á síðasta leikári var 73.732 gestir. Sýningargestum atvinnuleikhópa fækkaði um ríflega fjórðung frá næsta leikári á undan (sjá mynd 3).


 

Aðsóknarhæsta uppfærsla síðasta leikárs á vegum atvinnuleikhópa var Sirkus Íslands á vegum samnefnds leikhóps, með laust yfir 20 þúsund gesti.

Áhugaleikfélög
Á þar síðasta leikári færðu 37 áhugaleikfélög á svið 108 leiksýningar víðs vegar um landið, en upplýsingar um starfsemi áhugaleikfélaga á síðasta leikári liggja ekki fyrir.  Átta af hverjum tíu uppfærslum voru leikverk eftir innlenda höfunda. Félögin sýndu 523 sinnum fyrir 35 þúsund gesti. Fjöldi gesta að sýningum áhugaleikfélaga stóð í stað milli leikára (sjá mynd 4).

 

Um tölurnar
Árleg gagnasöfnun Hagstofunnar um leiksýningar tekur til leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga. Tölur eru fengnar með góðfúslegu samþykki frá viðkomandi leikhúsum og samtökum atvinnuleikhúsa og áhugaleikfélaga, Sjálfstæðu leikhúsunum og Bandalagi íslenskra leikfélaga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.