Hinn 1. janúar síðastliðinn voru fullorðin sóknarbörn í Þjóðkirkjunni (18 ára og eldri) 186.697 eða 78,8% mannfjöldans. Kaþólska kirkjan er næstfjölmennasta trúfélag landsins með 6.559 félagsmenn 18 ára og eldri. Utan trúfélaga voru 8.483 fullorðnir einstaklingar skráðir 1. janúar 2010, en 15.682 í óskráð trúfélög eða ótilgreint.
Tafla 1. Fjöldi 18 ára og eldri eftir trúfélögum 2009 og 2010 | |||||
2009 | 2010 | ||||
Fjöldi | % | Fjöldi | % | ||
Alls | 238.587 | 100,0 | 236.948 | 100,0 | |
Þjóðkirkjan | 187.343 | 78,5 | 186.697 | 78,8 | |
Fríkirkjur | 11.510 | 4,8 | 11.832 | 5,0 | |
Fríkirkjan í Reykjavík | 5.830 | 2,4 | 6.026 | 2,5 | |
Fríkirkjan í Hafnarfirði | 3.547 | 1,5 | 3.632 | 1,5 | |
Óháði söfnuðurinn | 2.133 | 0,9 | 2.174 | 0,9 | |
Önnur skráð trúfélög | 13.647 | 5,7 | 14.254 | 6,0 | |
Kaþólska kirkjan | 6.325 | 2,7 | 6.559 | 2,8 | |
Hvítasunnukirkjan á Íslandi | 1.588 | 0,7 | 1.626 | 0,7 | |
Ásatrúarfélagið | 1.155 | 0,5 | 1.266 | 0,5 | |
Önnur | 4.579 | 1,9 | 4.803 | 2,0 | |
Önnur trúfélög og ótilgreint | 18.479 | 7,7 | 15.682 | 6,6 | |
Utan trúfélaga | 7.608 | 3,2 | 8.483 | 3,6 |
Breytingar á trúfélagsaðild
Alls voru 3.717 breytingar á trúfélagsaðild skráðar árið 2009. Flestir skráðu sig úr Þjóðkirkjunni, alls 1.982. Flestir þeirra létu skrá sig utan trúfélaga, 1.066, en allnokkrir í einhvern fríkirkjusafnaðanna þriggja (585). Flestar nýskráningar voru utan trúfélaga árið 2009, alls 1.184. Af trúfélögum voru flestar nýskráningar í Kaþólsku kirkjuna (736). Flestir þeirra voru áður í óskráðu trúfélagi eða ótilgreindu (672).
Tafla 2. Trúfélagsbreytingar 2009 | |||||||
Nýtt trúfélag | |||||||
Önnur | |||||||
Önnur | trúfélög | ||||||
Þjóð- | Frí- | Kaþólska | skráð | og | Utan | ||
Alls | kirkjan | kirkjur | kirkjan | trúfélög | ótilgreint | trúfélaga | |
Fyrra trúfélag | |||||||
Alls | 3.717 | 238 | 644 | 736 | 911 | 4 | 1.184 |
Þjóðkirkjan | 1.982 | . | 585 | 50 | 279 | 2 | 1.066 |
Fríkirkjur | 158 | 94 | 7 | 7 | 22 | 0 | 28 |
Kaþólska kirkjan | 61 | 23 | 7 | . | 8 | 0 | 23 |
Önnur skráð trúfélög | 329 | 63 | 8 | 3 | 202 | 0 | 53 |
Önnur trúfélög og ótilgreint | 1.062 | 21 | 16 | 672 | 339 | . | 14 |
Utan trúfélaga | 125 | 37 | 21 | 4 | 61 | 2 | . |
Skýring: Allar breytingar á trúfélagsskráningu, óháð aldri. |
Skráðum trúfélögum fjölgar um 17 frá 1990
Skráðum trúfélögum hefur fjölgað talsvert á undanförnum árum. Skráð trúfélög utan Þjóðkirkju og fríkirkjusafnaða eru nú 27 en voru 10 árið 1990. Tvö ný trúfélög voru skráð árið 2009, Menningarsetur múslima á Íslandi og Kirkja hins upprisna lífs. Í Menningarsetri múslima á Íslandi voru skráðir 146 félagsmenn 18 ára og eldri hinn 1. janúar 2010 en 19 félagsmenn í Kirkju hins upprisna lífs.
Skýringar
Aðild að Þjóðkirkjunni og öðrum trúfélögum sem dóms- og mannréttindaráðuneytið hefur viðurkennt er skráð í þjóðskrá. Ríkissjóður skilar sóknargjaldi til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga ár hvert fyrir hvern einstakling sem náð hefur 16 ára aldri 1. janúar. Miðast fjöldi þeirra við skráningu þjóðskrár 1. desember ári áður. Gjald vegna einstaklinga sem standa utan trúfélaga eða eru í trúfélagi sem ekki hefur hlotið skráningu 1. desember var afnumið 2009.