FRÉTT MENNING 08. APRÍL 2026

Árið 2024 voru rekstrartekjur í menningu og skapandi greinum 179 milljarðar króna og höfðu aukist um tæp 6,0% frá árinu á undan þegar þær voru 169 milljarðar. Á verðlagi ársins 2024 nam hækkunin um 0,1%.

Rekstrartekjur voru mestar í kvikmyndum og sjónvarpi, um 49,2 milljarðar króna, og jukust einnig hlutfallslega mest eða um 17,9% frá árinu áður, úr 41,8 milljörðum.

Rekstrartekjur jukust einnig talsvert í myndlist, um 12,6%, og í menningararfi um 10,2%. Aftur á móti drógust rekstrartekjur saman í nokkrum flokkum, þá helst í listnámi um 12,4% eða úr 2,9 milljörðum króna í 2,6 milljarða. Einnig var nokkur samdráttur í prentun og tónlist, um 9,2% annars vegar og 5,6% hins vegar.

Rekstraraðilar
Rekstraraðilar í menningu og skapandi greinum árið 2024 voru 3.618 talsins og fjölgaði um 28 aðila eða um tæpt prósent á milli ára.

Flestir rekstraraðilar voru í tónlist, um 687 talsins, og hafði fjölgað um 12 frá árinu á undan sem jafngildir um 1,8% aukningu. Hins vegar voru fæstir rekstraraðilar í tölvuleikjum, 17 talsins, og hafði þeim fjölgað um einn frá fyrra ári.

Rekstraraðilar í kvikmyndum og sjónvarpi fækkaði mest árið 2024, eða um 25 sem samsvarar um 3,7% samdrætti. Aftur á móti var mest hlutfallsleg fækkunin í listnámi eða um 10 rekstraraðila sem jafngildir um 13,9% samdrætti.

Mesta aukning var í myndlist en þá fjölgaði rekstraraðilum um 42 aðila eða um 9,1%.

Um gögnin
Upplýsingar um rekstrartekjur í menningu og skapandi greinum má finna í uppfærðum menningarvísum Hagstofunnar. Talnaefni um rekstraraðila og rekstrartekjur byggja á rekstrarreikningum og skattframtölum rekstraraðila (RSK 1.04 og 4.11). Frekari upplýsingar má finna í lýsigögnum.

Menningarvísar Hagstofunnar byggja á sérstakri hliðarflokkun þar sem talnaefni er flokkað niður í tólf menningargreinar og skapandi greinar: auglýsingastofur, bókmenntir, fjölmiðlar, hönnun og arkitektúr, kvikmyndir og sjónvarp, listnám, menningararf, myndlist, prentun, sviðslistir, tónlist, og tölvuleiki. Um er að ræða séríslenska flokkun sem byggir í grunninn á skilgreiningu Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, á atvinnugreinum menningar (e. cultural industries).

Ákveðnar atvinnugreinar falla alfarið undir eina menningargrein en í öðrum þarf að yfirfara rekstraraðila og flokka í hliðarflokka menningargreina. Allir rekstraraðilar með a.m.k. þrjár milljónir króna í rekstrartekjur á ársgrundvelli voru yfirfarnir sérstaklega og flokkaðir í hliðarflokka menningargreinar.

Menningarvísar

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.