Í desember 2024 sóttu rúmlega 20.200 börn leikskóla á Íslandi. Hlutfall barna sem sótti leikskóla var 88% og hafði hækkað um tvö prósentustig frá fyrra ári þegar miðað er við 1-5 ára börn. Hlutfall eins árs barna á leikskólum var mjög breytilegt eftir landsvæðum, hæst á Vestfjörðum 84% en lægst á Suðurnesjum 9%. Þetta ár voru 258 leikskólar starfandi og hafði fækkað um þrjá frá árinu áður.