Alls brautskráðust 5.276 nemendur úr háskólanámi árið 2024. Háskólanemar á sviði félagsvísinda voru flestir brautskráðra og konur voru í meirihluta á flestum sviðum. Alls brautskráðust 3.630 konur og 1.646 karlar úr háskólanámi. Tæplega helmingur brautskráðra, eða 51,4%, lauk fyrstu háskólagráðu, þar af 1.775 konur og 937 karlar.
Af sviði félagsvísinda brautskráðust 1.690 nemendur, þar af 1.113 konur og 577 karlar. Af þeim luku 782 nemendur fyrstu háskólagráðu. Næstflestir brautskráðust af heilbrigðis- og velferðarsviði, alls 1.075 og þar af luku 556 nemendur fyrstu háskólagráðu. Mesti kynjamunur brautskráðra var á þessu sviði en í heildina brautskráðust 952 konur en aðeins 123 karlar.
Konur voru aðeins í minnihluta brautskráninga af sviði verkfræði, framleiðslu og mannvirkjagerðar. Af því sviði brautskráðust 435 nemendur, 271 karlar og 164 konur, þar af 325 með fyrstu háskólagráðu. Af sviði raunvísinda, stærðfræði og tölvunarfræði brautskráðust 478 nemendur, 238 karlar og 240 konur. Alls brautskráðust 929 nemendur af sviði menntunar, 444 nemendur af sviði hugvísinda og lista og 188 af sviði þjónustu. Fæstir brautskráðra voru af sviði landbúnaðar og dýralækninga, eða 37 nemendur.